Bókmenntasaga Jóns Ólafssonar kemur út í fyrsta sinn á prenti
Bókmenntasaga Jóns Ólafssonar úr Grunnavík er í hópi fyrstu íslensku bókmenntasagnanna og kynnir hún lesendum hugmyndir 18. aldar manna um bókmenntir.
NánarBókmenntasaga Jóns Ólafssonar úr Grunnavík er í hópi fyrstu íslensku bókmenntasagnanna og kynnir hún lesendum hugmyndir 18. aldar manna um bókmenntir.
Nánar
Trausti Dagsson hefur tekið til starfa sem verkefnisstjóri á stjórnsýslusviði við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hann mun annast forritun og stafræna miðlun margvíslegra verkefna á fræðasviðum stofnunarinnar.
NánarAndrew Wawn, prófessor við háskólann í Leeds, flytur hátíðarfyrirlestur á lokadegi 17. alþjóðlega fornsagnaþingsins kl. 9 í Háskólabíói, sal A. Fyrirlesturinn nefnist Njála in Svarfaðardalur, c. 1773. Fundarstjóri er Natalie van Deusen. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
NánarDagana 12.–17. ágúst næstkomandi verður 17. alþjóðlega fornsagnaþingið haldið í Reykjavík og Reykholti. Yfirskrift þess og aðalviðfangsefni er Íslendinga sögur en þess verður einnig minnst í dagskrá þingsins að um þessar mundir eru 900 ár liðin frá upphafi lagaritunar á Íslandi.
Nánar
Sýningin Lífsblómið – Fullveldi Íslands í 100 ár opnaði þann 17. júlí síðastliðinn. Hún er samvinnuverkefni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Þjóðskjalasafns Íslands og Listasafns Íslands. Auk þess hafa önnur söfn og stofnanir, sem og einkaaðilar, bæði hér á landi og í Danmörku, lánað verk á sýninguna.
NánarMennta- og menningarmálaráðherra skipar Málnefnd um íslenska táknmálið til fjögurra ára í senn í samræmi við 7. gr. laga nr. 61 frá 7. júní 2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls.
NánarUm þessar mundir er verið að kjósa orð ársins 2017. Það eru RÚV, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Mímir, félag stúdenta í íslensku og almennum málvísindum við Háskóla Íslands, sem gangast fyrir kosningunni. Mögulegt er að fletta upp öllum tilnefndum orðum á vefgáttinni málið.is. Tilkynnt verður um niðurstöðu kosningar um orð ársins á þrettándanum 2018.
Nánar