Skip to main content

Pistlar

foreldrar − foreldri

Orðið foreldrar, sem að formi er karlkynsorð í fleirtölu, merkir sem kunnugt er 'faðir og móðir' en hvorugkynsorðið foreldri er nú einkum notað þegar tala þarf um annaðhvort móður eða föður án þess að tiltaka hvort er; merkingin er með öðrum orðum 'móðir eða faðir'. Upprunalega eru þetta tvímyndir sama orðs sem komnar voru fram strax í fornu máli og eldri merking er 'forfeður, ætterni'; hún er merkt sem fornt eða úrelt mál í Íslenskri orðabók (2002). 

Óvenjulegt er að orð hafi mismunandi kyn í eintölu og fleirtölu eins og þróunin hefur orðið í þessu tilviki og í orðabókum eru þetta yfirleitt talin tvö uppflettiorð þótt form og merking séu nokkurn veginn þau sömu í báðum. Ástæða þessa misræmis í málnotkun er sú að karlkynsorðið, sem nú er nánast einrátt í fleirtölu, á sér enga eintölumynd. Þegar nauðsynlegt reynist að tala um annað foreldranna og ekki skiptir máli hvort þeirra er hefur því verið gripið til eintölu hvorugkynsorðsins frekar en að segja alltaf  „faðir eða móðir“.

Eftirfarandi dæmi, þar sem bæði orðin koma við sögu í sömu málsgrein, sýna notkunina ágætlega.

  • sérhvert foreldri getur séð sjálft sig í þeim sporum, sem foreldrar þeirra barna, sem eiga við erfið veikindi að glíma [...] standa í. (Mbl. 21.2.2003)
  • Þetta frumvarp er einn liður í því að tryggja réttindi barns sem missir annað foreldri eða báða. (Mbl. 2.7.2017)

Fleirtala af hvorugkynsorðinu er fátíð í nútímamáli en henni bregður eigi að síður fyrir á síðari tímum eins og sjá má dæmi um í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans.

  • Foreldri hans voru Jón hreppst. Runólfsson og Sigríður Jónsdóttir. (1891)
  • Bæði foreldri mín kunnu að rita. (1922)
  • Er því foreldri séra Einars vel stætt atgervisfólk. (1967)
Birt þann 20. júní 2021
Síðast breytt 24. október 2023
Heimildir
  • Ritmálssafn Orðabókar Háskólans.
  • Ásgeir Blöndal Magnússon (1989): Íslensk orðsifjabók. Reykjavík: Orðabók Háskólans. (Leitarbær á málið.is.)
  • Íslensk orðabók (2002). 3. útg. Ritstj.: Mörður Árnason. Reykjavík: Edda.
  • Tímarit.is. Landsbókasafn Íslands − Háskólabókasafn.