Skip to main content

Fréttir

Málfregnir
Málfregnir 2024 komið út
Málfregnir, vefrit Íslenskrar málnefndar, er komið út. Meginefni ritsins eru erindi sem flutt eru á árlegum málræktarþingum nefndarinnar ásamt stökum greinum og efni til fróðleiks.
Skrift á handritasíðu
Ný rafræn útgáfa á Konungsbók eddukvæða
Höfuðhandrit eddukvæða, GKS 2365 4to, Konungsbók, sem ritað var um 1270, er nú aðgengilegt í nýrri röð rafrænna textaútgáfna, Editiones Arnamagnæanæ Electronicæ, á vegum Árnastofnunar á Íslandi og Árnasafns í Kaupmannahöfn.
Tvær konur standa við borð sem á hvíla handrit á svörtum púðum. Önnur stendur fyrir framan stórt og voldugt handrit og hin brosir til hennar. Fólk stendur álengdar fyrir framan bókahillur og fylgist með.
Handritin flutt í Eddu
Mánudaginn 11. nóvember voru fyrstu miðaldahandritin flutt úr Árnagarði í nýtt öryggisrými í Eddu. Handritin hafa verið geymd í sérstakri öryggisgeymslu í Árnagarði síðan í upphafi áttunda áratugarins eða í tæp 55 ár.
Tölvuskjár sem sýnir veforðabókina LEXÍU
Íslensk-þýsk veforðabók opnuð
Föstudaginn 4. október sl. var íslensk-þýska veforðabókin LEXÍA opnuð við hátíðlega athöfn á 40 ára afmæli deildar skandinavískra fræða við háskólann í Vínarborg
Árnastofnun á Vísindavöku 2024
Árnastofnun tók þátt í Vísindavöku 2024 laugardaginn 28. september. Í ár kynntu þeir Atli Jasonarson, Bjarki Ármannsson og Steinþór Steingrímsson nokkur verkefni Árnastofnunar.
Sköllóttur maður í jakkafötum krossleggur handleggi. Hann er með gleraugu en hægra glerið er dökkt. Kona með axlasítt hár í hvítri peysu útskýrir eitthvað með höndunum.
Salman Rushdie sótti Árnastofnun heim
Rithöfundurinn Salman Rushdie kom nýverið til landsins til að taka á móti Alþjóðlegum bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness. Meðan á heimsókninni stóð lagði hann leið sína á Árnastofnun.
Upptaka: Sigurðar Nordals fyrirlestur 2024

Sigurðar Nordals fyrirlestur er haldinn 14. september ár hvert. Fyrirlesari í ár var Veturliði Óskarsson, prófessor í norrænum fræðum við Uppsalaháskóla í Svíþjóð, og hefur upptaka af erindi hans nú verið gerð aðgengileg.