baldakin
Nýlega var orðinu baldakin bætt inn í Íslenska nútímamálsorðabók í merkingunni 'hlíf utan um ljósastæði'. Orðið er að finna í ýmsum orðabókum og af því eru til nokkuð mörg ritháttarafbrigði. Í Íslenskri orðsifjabók (1989) eru uppflettimyndirnar baldikin, baldrkinn, baldurskinn saman og merkingin er 'silkiefni eða -tjald'. Þar er orðið sagt tökuorð úr miðlágþýsku baldekin úr fornfrönsku baldaquin, „eiginlega 'efni eða dúkur frá Bagdad'“.
Nánar