Hver er letrið les, bið fyrir blíðri sál, syngi signað vers. Með þessum orðum lýkur rúnaáletrun á legsteini Sigríðar Hrafnsdóttur á Grenjaðarstað um miðja 15. öld. Með fornleifauppgötvunum síðustu ára hefur komið æ betur í ljós að rúnir voru notaðar á Íslandi frá upphafi byggðar til þess að rista nöfn og setningar í gripi af ýmsu tagi. Þótt Íslendingar lærðu að rita bækur með latínuletri hélt...
Kaupa bókinaSearch
Gripla XXXIV
Gripla, alþjóðlegt ritrýnt ISI-tímarit Árnastofnunar um handrita-, bókmennta- og þjóðfræði, er komin út með ellefu fræðiritgerðum (þremur á íslensku og átta á ensku með ágripum á báðum málum) og útgáfum stuttra texta. Declan Taggart skrifar um fornnorræna orðið siðr. Fjallað hefur verið um trúarlega merkingu þess en hin siðferðilega vídd notið minni athygli. Greining Declans á elstu dæmum...
Gripla 34 er komin út
Gripla, alþjóðlegt ritrýnt ISI-tímarit Árnastofnunar um handrita-, bókmennta- og þjóðfræði, er komin út með ellefu fræðiritgerðum og útgáfum stuttra texta.
NánarNöfn á nýrri öld. 20 greinar í tilefni 20 ára afmælis Nafnfræðifélagsins
Nafnfræðifélagið var stofnað í Reykjavík árið 2000 og varð því tvítugt á árinu 2020. Bókin Nöfn á nýrri öld. 20 greinar í tilefni 20 ára afmælis Nafnfræðifélagsins inniheldur greinar eftir höfunda sem hafa flutt fyrirlestra á fræðslufundum félagsins. Efni greinanna er fjölbreytt og sýnir viðfangsefni félagsins sem nær til nafna af flestum sviðum tilverunnar. Í bókinni er greinunum skipað í fimm...
Kaupa bókinaÚtgáfuhóf og kynning á nýjum bókum Árnastofnunar
Tvær nýjar bækur hafa verið gefnar út af Árnastofnun. Annars vegar bókin Rúnir á Íslandi eftir Þórgunni Snædal sem, eins og nafnið gefur til kynna, fjallar um fjölbreytta notkun rúnaleturs á Íslandi allt frá landnámstíð og fram á 19. öld. Hins vegar er það greinasafnið Nöfn á nýrri öld.
Nánar