Search
Afkomandi Wagners skoðar Konungsbækur
Barnabarnabarn óperuskáldsins Richards Wagners, Eva Wagner Pasquier, kom í heimsókn á Árnastofnun föstudaginn 27. október sl. til að skoða Konungsbók eddukvæða og Snorra Eddu, helstu heimildir óperusveigs langafa hennar um Niflungahringinn.
NánarFundur Nafnfræðifélagsins: Friðlandið að Fjallabaki
Nafnfræðifélagið heldur seinni fræðslufund misserisins laugardaginn 11. nóv. nk. í stofu 202 í Odda, húsi Háskóla Íslands, og hefst kl. 13.15. Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina: Nafngiftir í Friðlandinu að Fjallabaki.
NánarAðalfundur vinafélags Árnastofnunar
Stjórn Vina Árnastofnunar heldur aðalfund félagsins mánudaginn 13. nóvember 2017 kl. 15.30-16.30 í Norræna húsinu. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf:
NánarMarjorie Curry Woods flytur Árna Magnússonar fyrirlestur
Í ár mun Marjorie Curry Woods flytja fyrirlestur Árna Magnússonar í Norræna húsinu, 13. nóvember kl. 17.
NánarMálræktarþing Íslenskrar málnefndar
Ritun í skólakerfinu – málræktarþing Íslenskrar málnefndar og MS
NánarStofnun Árna Magnússonar hlaut tvo styrki úr máltæknisjóði
Máltæknisjóður veitti 16,9 milljónum í verkefnið Enduruppbygging Beygingarlýsingar íslensks nútímamáls. Í verkefninu verður smíðaður nýr gagnagrunnur utan um beygingarlýsinguna sem býður upp á nákvæmari greiningu gagnanna. Bætt greining gefur kost á fjölbreyttari nýtingu gagnanna, t.d. við gerð kennsluefnis eða önnur leiðbeinandi not.
Nánar