Skip to main content

Pistlar

Glanni

Birtist upphaflega í apríl 2005.

Örnefnið Glanni er a.m.k. á tveimur stöðum á Vesturlandi, annars vegar foss í Norðurá í Mýrasýslu, suður undan Hreðavatni. Hann hét áður Glennrar (máldagi 1306) eða Glennunarfoss (1397) (Íslenskt fornbréfasafn IV:122; Glunnrarfoss í nafnaskrá). Í sóknarlýsingu eftir sr. Jón Magnússon frá 1840 er talað um „sjónhending í Glannarafoss í Norðurá hvar hann hvítfaxar“ (Sýslu- og sóknalýsingar Mýra- og Borgarfjarðarsýslna, (útgáfa væntanleg), bls. 39). (Sjá mynd.)

Glanni er einnig nafn á streng eða fossi í Langá á Mýrum. Í sóknarlýsingu sr. Þorkels Eyjólfssonar frá 1873 er talað um „svaðafossinn Glanna“ (sama rit, bls. 107). (Með svaðafossi er líklega átt við farveg þar sem hávaðar eru, sbr. sóknarlýsingu Keldnasóknar á Rangárvöllum frá um 1840 (Rangárvallasýsla. Sýslu- og sóknalýsingar 1968, bls. 150).)

Merking orðsins glanni er m.a. ‘blika, gljá’ og orðsins glenna ‘birta, skin’ > ‘ljósop (í lofti eða skógi)’ > ‘rifa, auður blettur’. Orðin eru skyld orðunum gláma og glóa. Skyld orð eru glan (hvk.) sem merkir ‘gljái’ og glana (so) ‘birta til’. Sögnin hefur síðar orðið að so. glaðna (til) vegna merkingarskyldleika. Glan(u)r var maki sólar og hestsheiti, skv. Snorra-Eddu og er afbrigði þess Glen(u)r ‘hinn skínandi’ (skv. orðabók um skáldamálið forna (Lexicon poeticum (1931), bls.188)).

Orðið glanni merkti í fornu máli eins og í nútímamáli „fremfusende og overmodig person“ (Lexicon poeticum (1931), bls.187). Það var einnig nafn á manni, skv. handriti af Snorra-Eddu (Johan Fritzner, Ordbog over Det gamle norske sprog IV:128 (1972)). Á 18. öld er það þekkt úr Orðabók Björns Halldórssonar í merk. ‘importunus scurra’ á latínu, ‘en paatrængende Nar’ á dönsku. Líklegra er að merking fossnafnsins Glanni sé frekar ‘hinn skínandi’ en ‘uppáþrengjandi’ þó svo að merk. ‘fremfusende’ geti út af fyrir sig hugsast um foss af þessu tagi.

En því má einnig velta fyrir sér hvort skyldleiki við sögnina glenna (sundur) ‘kljúfa í tvennt’ komi til greina, en meðfylgjandi mynd af Glanna gefur tæplega tilefni til þess.

Birt þann 20. júní 2018
Síðast breytt 24. október 2023