- Tveggja metra fjarlægðarregla er í gildi á öllum starfsstöðvum stofnunarinnar.
- Skylda er að bera andlitsgrímu á stofnuninni ef ekki er unnt að halda tilskilinni fjarlægð. Ráðlagt er að forðast hópamyndun svo sem í kaffistofum eða öðrum rýmum.
- Brýnt er að allir innan stofnunarinnar, starfsmenn og gestir, fari í hvívetna eftir leiðbeiningum Embættis landlæknis vegna COVID-19 um persónulegar sóttvarnir, svo sem handþvott og annað hreinlæti, fjarlægðartakmörk og grímunotkun eftir því sem við á (sjá covid.is).
- Hvatt er til fjarvinnu eftir því sem mögulegt er.