Skip to main content

Notkun og meðferð handrita

Að öllum jafnaði skulu myndir (ef til eru) notaðar til rannsókna í stað handrita. Stafrænar myndir eru á handrit.is. Skrár yfir bæði pappírsmyndir og filmur/diska og stafrænar myndir liggja frammi á stofnuninni.

Fræðimenn og háskólanemar sem þurfa að skoða handrit við rannsóknir sínar geta sótt um aðstöðu í húsakynnum Árnastofnunar með því að hafa samband við Guðnýju Ragnarsdóttur, bókasafns- og upplýsingafræðing. Sérfræðingar á stofnuninni (fraedari [hjá] arnastofnun.is) sjá um að afgreiða handrit til notenda. Listi yfir fræðaravaktir er aðgengilegur í móttöku stofnunarinnar, á kaffistofu og framan við handritageymslu.

  • Handrit eru afgreidd milli kl. 9 og 16.30. Gestir fylla fylla út lánseyðublöð og afhenda fræðara sem afgreiðir handrit. Gestum ber að skila handritum til fræðara fyrir kl. 17.
  • Ekki eru afgreidd fleiri en þrjú handrit í einu og nokkur sérlega viðkvæm handrit eru undanþegin notkun.
  • Nota skal bókavöggur til verndar bandi og ‘bókaorma’ (snáka) til að halda bókum opnum.
  • Hendur þurfa að vera hreinar og þurrar áður en tekið er á handriti. Forðast ber að snerta leturflöt handrita með berum höndum.
  • Ekki má nota blek eða kúlupenna í nánd við handrit, einungis blýanta. Ekki skal skrifa ofan á handritum og ljósmyndum.
  • Handrit á ekki að hafa opin að óþörfu því birta er þeim skaðleg. Þá er stranglega bannað að hafa mat eða drykk um hönd í námunda við handrit.
  • Ekki má yfirgefa handrit á borðum. Þurfi gestur að bregða sér frá afhendir hann fræðara handritið til geymslu.
  • Ekki má skilja neitt eftir inni í handriti. Aldrei má breyta röð lausra blaða í handriti.
  • Nota má stafrænar myndavélar til að taka myndir í fræðilegum tilgangi til einkanota en gæta skal ýtrustu varkárni. Ekki má nota ljósgjafa né valda ónæði fyrir aðra gesti. Ljósritun/skönnun handrita er ávallt óheimil. Gæðamyndir til birtingar er hægt að panta.
  • Forvörður stofnunarinnar hefur umsjón með notkun og meðferð gesta á handritum og ákveður hvaða handrit eru undanþegin notkun.