Íslensk táknaheiti
Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands tók saman.Sækja sem PDF skrá
Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands tók saman.Sækja sem PDF skrá
Heiður og huggun. Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld. Bókin Heiður og huggun. Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld eftir dr. Þórunni Sigurðardóttur er komin út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Háskólaútgáfan sér um dreifinguna. Í bók Þórunnar er fjallað um bókmenntagreinar sem voru vinsælar áður fyrr en hafa ekki verið rannsakaðar að neinu marki hér á...
Kaupa bókinaRitstjórar: Jóhanna Katrín Friðriksdóttir og Viðar Pálsson. Að vanda er að finna í nýjustu Griplu áhugavert og vandað efni auk samtínings: Eldar Heide skrifar um hugmyndafræði Egils sögu Skalla-Grímssonar, Gunnvör S. Karlsdóttir ræðir heimildir um beinafærslu og skrínlagningu Guðmundar góða biskups, Elizabeth Walgenbach rýnir í handrit með íslenskum annálum ásamt öðru efni og tengslum þess við...
Kaupa bókinaÚt er komið greinasafnið Bundið í orð. Greinarnar fjalla allar um orðabókafræði og orðabókagerð og eru eftir Jón Hilmar Jónsson. Í bókinni eru þrettán greinar ritaðar á árabilinu 1990‒2017. Sú nýjasta var skrifuð sérstaklega fyrir þetta rit en aðrar hafa birst áður í innlendum og erlendum tímaritum eða greinasöfnum. Efni greinanna endurspeglar viðfangsefni og rannsóknir höfundar í starfi hans...
Kaupa bókinaRitstjórar: Jóhanna Katrín Friðriksdóttir og Viðar Pálsson. Í þessu nýjasta hefti er sem fyrr að finna áhugavert efni, níu fræðigreinar auk samtínings: Russell Poole skrifar um alþjóðlegt samhengi dróttkvæða, Stephen Pelle fjallar um heimildir fyrir norrænum hómilíum, Kirsten Wolf gefur út tvær dæmisögur ásamt skýringum, Þorgeir Sigurðsson, Guðvarður Már Gunnlaugsson og Haukur Þorgeirsson skoða...
Glíman við orðin er úrval ritgerða eftir Guðrúnu Kvaran og er gefin út í tilefni sjötugsafmælis höfundar sumarið 2013. Í bókinni eru nítján greinar sem sýna fjölbreytt viðfangsefni Guðrúnar: orðfræði, orðsifjar, nafnfræði, biblíumál og sögu íslenskrar málfræði. Að bókarlokum er ritaskrá höfundar. Guðrún Kvaran lauk cand. mag.-prófi í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands árið 1969 og...
Kaupa bókinaÁ sjötugsafmæli Einars G. Péturssonar 25. júlí 2011 gaf Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum út rit honum til heiðurs. Það ber nafnið Hulin pláss og er úrval ritgerða sem Einar hefur samið á 35 ára ferli sínum við rannsóknir og útgáfur á stofnuninni. Ritið er 366 blaðsíður og skiptast ritgerðirnar í tvo flokka og hafa allar nema sú síðasta birst áður á prenti en eru nú yfirfarnar og auknar....
Kaupa bókinaTiodielis saga er ævintýri sem sver sig í ætt við riddarasögur. Hún er varðveitt í 24 íslenskum handritum, hið elsta er skinnhandrit frá 16. öld og hið yngsta á pappír frá því um 1900. Þrennar rímur hafa verið ortar út af sögunni, þær eru til í fjölda íslenskra handrita. Tiodielis saga segir frá riddara sem hverfur úr konungshirð á skóga, fer úr klæðum sínum og tekur á sig dýrsham og etur...
Kaupa bókinaRitstjórar: Margrét Eggertsdóttir, Gísli Sigurðsson, Svanhildur Óskarsdóttir og Úlfar Bragason. Efni: Stefán Karlsson: Bókagerð Ara lögmanns Jónssonar Stefán Karlsson: Skrifandi bændur 1649 Elizabeth Ashman Rowe: Literary, Codicological, and Political Perspectives on Hauksbók Elena Gurevich: The Fantastic in Íslendinga þættir, with Special Emphasis on Þorsteins þáttr...
Kaupa bókinaEinar Sigurðsson í Eydölum (1539−1626) var höfuðskáld á síðari hluta sextándu aldar og fyrsta hluta þeirrar sautjándu. Ljóst er að Guðbrandur biskup Þorláksson hefur metið skáldskap hans mikils þar sem megnið af fyrri hluta Vísnabókar, þeirrar sem biskup gaf út árið 1612, er eftir Einar. Mikið hefur skort á að skáldskapur Einars hafi verið aðgengilegur almenningi. Vísnabókin var fágæt, auk þess...
Kaupa bókina