Stundum er litið á sterkar sagnir sem óreglulegar sagnir enda eru þær ærið fjölskrúðugar – sérhljóðin breytast til og frá í ýmsar áttir og samhljóðin eru langt í frá óhult heldur. Samt eru í öllum þeim sæg beygingarmynda alls konar regluleg mynstur. Það sem meira er, stundum má sjá að fastheldni við þessi reglulegu mynstur hefur komið í veg fyrir hljóðbreytingar sem annars gerðust reglulega í málinu. Hér verða rakin dálítil dæmi um þetta.
Hin vinsæla a-þátíð og kerfið í fleirtölumyndunum
Hljóðskiptamynstur sterkra sagna eru fjölbreytt en þau eru ekki hvernig sem er. Engar sterkar sagnir hafa til dæmis sérhljóðin u eða í eða ú eða æ í eintölumyndum þátíðar. Hins vegar eru mjög margar sem hafa þar sérhljóðið a. Við skulum líta á 20 dæmi:
bað, bar, brast, datt, drakk, drap, gaf, gall, kvað, lak, nam, rann, sat, skall, skalf, skar, skrapp, slapp, spratt, svaf
Þessar sagnir skiptast síðan í tvo flokka þegar kemur að fleirtölumyndum þátíðar. Sérhljóðið í rót orðsins verður þar stundum u:
brustu, duttu, drukku, gullu, runnu, skullu, skulfu, skruppu, sluppu, spruttu
Stundum verður rótarsérhljóðið aftur á móti á:
báðu, báru, drápu, gáfu, kváðu, láku, námu, sátu, skáru, sváfu
Er hægt að lýsa því á einhvern einfaldan hátt hvaða sagnir hafa hvaða sérhljóð? Já, mynstrið er mjög skýrt. Rótarsérhljóðið á fer á undan einföldu samhljóði, eins og í báðu, en rótarsérhljóðið u fer á undan löngu samhljóði, eins og í runnu, eða samhljóðaklasa, eins og í skulfu. Þessi aðgreining á sér ævafornar rætur og reyndar á sjálft hljóðskiptakerfið uppruna sinn á eldri stigum hinnar indó-evrópsku frumtungu.
Svo kváðu vottar
Einn munur á forníslensku og nútímaíslensku er að þau orð sem höfðu að fornu vá hafa í nútímamáli vo – þannig svara til dæmis fornmálsorðin váttr, svá, hvárt og vár til nútímaorðanna vottur, svo, hvort og vor. En þetta er ekki það sem við sjáum með sagnmyndirnar kváðu og sváfu – þar er vá eins og í fornmálinu.
Hvers vegna segjum við ekki kvoðu og svofu? Ástæða þess hlýtur að vera að sérhljóðið o er svo óvænt í þessu samhengi. Það er algengt mynstur að sérhljóðin a og á skipti með sér verkum í þátíðarmyndum sterkra sagna en stuðning skortir við það mynstur að a og o geri það. Tryggðin við a-á-mynstrið hefur orðið ofan á.
Hins vegar er til undantekning frá undantekningunni. Í fornmáli höfðum við sagnbeyginguna var-váru en nú á dögum var-voru. Þar fáum við hið einstaka a-o-mynstur sem málnotendum leist greinilega ekki vel á í sögnunum kveða og sofa. Hér hlýtur skýringin að vera sú að sögnin vera er svo gríðarlega algeng að hún getur staðið undir óreglulegri beygingu.
Álfur skalf og úlfar skulfu
Annað dæmi um sigur beygingarfræðinnar yfir hljóðbreytingum er einnig í gögnunum hér fyrir ofan. Myndirnar skalf og skulfu hafa orðið viðskila við almenna hljóðþróun í málinu. Almennt gildir sú regla að a og u breyttust í á og ú á undan lf. Þannig var í elstu forníslensku talað um alf og ulf þar sem við tölum nú um álf og úlf. Á 11. öld orti Steinn Herdísarson þetta:
Hét á oss, þás úti,
Ulfr, hákesjur skulfu
Hér rímar saman í aðalhendingum Ulfr og skulfu en nú á dögum er ekki sama sérhljóð í Úlfur og skulfu. Við hefðum átt að fá myndirnar *skálf og *skúlfu en vegna þess að á-ú-mynstur í þátíð sagna er óþekkt hefur hljóðbreytingin ekki náð fram að ganga. Af hollustu við hin hefðbundnu hljóðskiptamynstur höfum við enn myndirnar skalf og skulfu.
Þessi dæmi sýna að við lærum beygingu sterkra sagna ekki aðeins sögn fyrir sögn heldur öðlumst við líka einhverja heildartilfinningu fyrir henni. Þótt rætur þessa kerfis séu fornar og skrýtnar verða hljóðskiptamynstrin sterkur hluti af máltilfinningu fólks. Nógu sterkur til að mynda viðnám gegn hljóðbreytingum sem ganga í berhögg við kerfið.
Síðast breytt 28. september 2026