Search
Bókagleði Árnastofnunar
Blásið til bókagleði Árnastofnunar í Bóksölu stúdenta. Kynnt verða ritverk sem komið hafa út hjá stofnuninni á árinu auk rita sem gefin voru út í samstarfi við önnur forlög. Boðið verður upp á veitingar sem hlýja og gleðja. Dagskráin hefst kl. 15.
Nánar
Hildur Jónsdóttir vinnur að meistaraverkefni í máltækni um íslenska venslamálfræði og venslatrjábanka
Í meistaraverkefninu er tilraun gerð til að nota norskan þáttara við að þátta íslenskan texta með aflexíkalíseruðu mállíkani (e. delexicalized model). Í aflexíkalíseruðu mállíkani er búið að fjarlægja orðmyndir og uppflettimyndir úr líkaninu, eftir standa upplýsingar um orðflokk og beygingu, vensl og tegund vensla.
NánarAlþjóðegt sumarnámskeið í íslensku 2019
Árlegt alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku hefst 8. júlí. Námskeiðið er í fjórar vikur og eru nemendur á öllum aldri og af ýmsu þjóðerni. Nemendurnir hafa það eitt sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á íslensku máli og menningu.
Nánar
Gömul orðabók lifnar við
Á sumrin fyllist Árnastofnun af námsmönnum sem taka þátt í rannsóknarverkefnum á vegum fastra starfsmanna stofnunarinnar og sumarið 2019 er þar engin undantekning. Á starfsstöðinni á Laugavegi 13 er núna að störfum um tugur námsmanna sem vinnur að þremur verkefnum.
Nánar
Forsetafrú Þýskalands heimsótti Árnastofnun
Elke Büdenbender, forsetafrú Þýskalands heimsótti Árnastofnun ásamt frú Elizu Reed, forsetafrú Íslands. Guðrún Nordal forstöðumaður og Þórunn Sigurðardóttir rannsóknarprófessor sýndu þeim nokkur handrit og sögðu frá helstu gersemum stofnunarinnar.
Nánar