Search
Íslenskt textasafn: Nýir efnisflokkar í opinni leit
Íslenskt textasafn er eitt af gagnasöfnum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Talsverður hluti safnsins er öllum opinn til orða- og dæmaleitar á vefsíðu stofnunarinnar og vex hann jafnt og þétt. Nýlega hafa bæst við tveir flokkar texta, skáldverk eftir 1980 og ævisögur.
NánarSturlaðar sögur, afmælisrit Mette
Út er komið ritið Sturlaðar sögur, sagðar Úlfari Bragasyni, rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ritið inniheldur yfir 30 greinar fræðimanna og félaga Úlfari til heiðurs. Víða er komið við eins og sjá má í efnisyfirliti ritsins.
Nánar38 vöplur bakaðar og bornar fram
38 vöplur bakaðar og bornar fram Guðrúnu Ingólfsdóttur fimmtugri 1. maí 2009 eru komnar út, ljúffengar og glóðvolgar beint úr vöplujárninu.
NánarMenningarráð á landsbyggðinni
Á landsbyggðinni eru starfandi sjö menningarráð sem ná yfir afmörkuð svæði. Tilgangur þeirra er að efla menningarstarf á landsbyggðinni og stuðla að atvinnusköpun, samvinnu og gæðaþróun á menningarsviðinu.
NánarHagkvæm máltækni utan ensku – íslenska tilraunin
Á slóðinni http://iceblark.wordpress.com hefur verið opnuð heimasíða verkefnisins "Hagkvæm máltækni utan ensku – íslenska tilraunin" (Viable Language Technology Beyond English - Icelandic as a Test Case) sem hlaut þriggja ára öndvegisstyrk frá Rannsóknasjóði í janúar sl.
Nánar