Skip to main content

Fréttir

Sturlaðar sögur, afmælisrit Mette


Út er komið ritið Sturlaðar sögur, sagðar Úlfari Bragasyni, rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ritið inniheldur yfir 30 greinar fræðimanna og félaga Úlfari til heiðurs. Víða er komið við eins og sjá má í efnisyfirliti ritsins.

Starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefa út fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli. Síðustu árin hafa þessi rit verið kennd við Menningar- og minningarsjóð Mette Magnussen, en eiginkona Árna Magnússonar hét Mette. Útgáfa þessi er óháð stofnuninni formlega og fjárhagslega en rit Mettusjóðs hafa þó verið til sölu á henni. Ritið Sturlaðar sögur kostar 2.000 krónur.