Skip to main content

Fréttir

„Örnefni um landið“ hvatning til áframhaldandi söfnunar og miðlunar

Fundaröðin um örnefni og örnefnasöfnun sem haldin var á haustdögum á vegum menningarráða á landsbyggðinni og fleiri í samvinnu við stofnunina gekk vel. Fundirnir hafa vonandi glætt áhuga manna á að vinna að því að varðveita örnefni og koma þeim á varanlegt form og gera þau aðgengileg sem flestum. Tæplega fjörutíu manns sóttu fjölmennasta fundinn.