Myndlistaskólinn í Reykjavík og Árnastofnun hafa sameinað krafta sína og standa fyrir námskeiði fyrir 8–12 ára börn.
Í lýsingu námskeiðsins segir:
Á þessu námskeiði veltum við fyrir okkur fortíð, nútíð og framtíð í samhengi við sýninguna „Heimur í orðum“ og færum framandi hugtök nær okkur sjálfum gegnum ævintýri sköpunar. „Heimur í orðum“ er glæsileg sýning Árnastofnunar í Eddu á íslensku handritunum sem geyma ómetanlegan menningararf okkar. Nánar má fræðast um sýninguna á vefsíðunni Heimur í orðum.
Á námskeiðinu vinna nemendur með fjölbreyttan efnivið og aðferðir og kynnast gömlum handverkshefðum af ýmsu tagi. Þeir kynnast töfrum jarðefna og hvaðan efniviðurinn kemur, búa til bækur, liti og verkfæri til eigin listsköpunar. Verkefnin sem lögð verða fyrir byggja á grundvallaratriðum sjónlista, s.s. línu, lit, áferð, ljósi og skugga og að vinna í tvívídd og þrívídd. Áhersla verður lögð á svigrúm til tilrauna og rými fyrir eigin uppgötvanir nemenda og frjálst flæði.
Sjá nánar um skráningu og verð hér.