Skip to main content

Viðburðir

Vinnufundur um ritmenningu íslenskra miðalda

24. nóvember
2023
kl. 10–15.30

Vinnufundur um ritmenningu íslenskra miðalda, eða RÍM, verður haldinn í fyrirlestrasal Eddu, Arngrímsgötu 5 í Reykjavík, föstudaginn 24. nóvember 2023 kl. 10−15.30. Fundurinn er opinn öllum.

Kynnt verða flest þeirra verkefna sem hlotið hafa styrk úr sjóði sem komið var á fót í tilefni þess að árið 2019 voru 75 ár liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi. Ríkisstjórn Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Snorrastofa í Reykholti standa fyrir þessu fimm ára átaksverkefni um þverfaglegar rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda.

Hlutverk sjóðsins er m.a. að efla rannsóknir á heimildum um ritunarstaði miðaldahandrita á Íslandi og þá sérstaklega á þeim lærdómsmiðstöðvum og klaustrum þar sem ritmenning blómstraði (sjá nánar á heimasíðu Snorrastofu).

Úthlutanir úr sjóðnum hafa verið á hendi menningar- og viðskiptaráðuneytis að fenginni umsögn sérstakrar úthlutunarnefndar. Snorrastofa í Reykholti hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu unnin í samræmi við úthlutunarreglur.

Dagskrárstjórar eru Guðrún Nordal, formaður fagráðs RÍM og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Bergur Þorgeirsson, starfsmaður RÍM og forstöðumaður Snorrastofu.

Dagskrá

10.00–10.10 Setning

10.10–10.40 Axel Kristinsson og Árni Daníel Júlíusson: Sögur og fylgdarmenn

10.40–11.10 Elín Bára Magnúsdóttir: Höfundskapur Sturlu í Sturlunga sögu

11.10–11.40 Fornleifastofnun Íslands: Elín Ósk Hreiðarsdóttir og fleiri: Staðarhóll í Dölum: Höfuðból í minjum, sögu og sagnaritun

11.40–12.10 Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Beeke Stegmann: Bókagerð í Helgafellsklaustri á fjórtándu öld

12.10–13.00 Matarhlé

13.00–13.30 Oddafélagið: Helgi Þorláksson og fleiri: Oddarannsóknin

13.30–14.00 Náttúruminjasafn Íslands: Viðar Hreinsson: Náttúrur og fornar frásagnir. Um náttúru- og umhverfissýn íslenskra miðaldasagna

14.00–14.20 Kaffihlé

14.20–14.50 Háskóli Íslands: Gottskálk Þór Jensson: Þingeyraklaustur: Hjarta ritmenningar í fjórar aldir

14.50–15.30 Umræður. Árangur, samþætting og framtíðarsýn verkefnisins. Forvígismenn verkefnanna sitja í pallborði.

15.30 Léttar veitingar

 

2023-11-24T10:00:00 - 2023-11-24T15:30:00