Skip to main content

Viðburðir

Þröskuldur Heljar – Uppsala-Edda og leshættir hennar

Haukur Þorgeirsson flytur erindi í Eddu sem kallast: Þröskuldur Heljar  Uppsala-Edda og leshættir hennar.

Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti hennar á skjön við hin handritin og hefur það löngum valdið fræðimönnum heilabrotum. Margt skrýtið í handritinu virðist komið til fyrir vangá afritara eða tilhneigingu til að stytta textann svo mjög að merkingin bjagist. En einnig hefur Uppsala-Edda sums staðar lesháttu sem virðast upphaflegir þar sem hin handritin hafa sameiginlega afritunarvillu. Í þessu erindi verður farið yfir blöndu af því vænlega og því vafasama í þessu sérstakasta handriti Eddu.

 

Uppsala-Edda var skrifuð í upphafi 14. aldar en komst á 17. öld í eigu Brynjólfs Sveinssonar, síðar biskups. Brynjólfur gaf bókina dönskum fræðimanni, Stephan Stephanius, en eftir hans dag keypti sænski aðalsmaðurinn Magnus Gabriel De la  Gardie bókina og færði Uppsalaháskóla að gjöf árið 1669. Handritið er nú í láni á Íslandi í fyrsta sinn og til sýnis á handritasýningunni í Eddu.

Fyrirlesturinn hefst kl. 13 og eru allir velkomnir.

2026-06-20T13:00:00 - 2026-06-20T14:00:00