Skip to main content

Viðburðir

Sigurðar Nordals fyrirlestur. Guðmundur Andri Thorsson

14. september
2016
kl. 17–18.30
Guðmundur Andri Thorsson. Mynd: Vísir.is

Sigurðar Nordals fyrirlestur
Norræna húsinu
14. september kl. 17.00


Vér lærum ekki til að verða lærðir, heldur til að verða góðir.

 

Á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals 14. september gengst stofnunin fyrir svokölluðum Sigurðar Nordals fyrirlestri. Fyrirlesari að þessu sinni er rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson.

Guðmundur Andri beinir sjónum að Sveinbirni Egilssyni, skólastarfi hans og ritstörfum og hvernig hann var í hópi þeirra sem lögðu grundvöllinn að því hvernig við hugsum á íslensku. Einnig verður fjallað um samband þeirra feðga, hans og Benedikts Gröndal eins og því er lýst í Dægradvöl. Loks verður reynt að draga fram það úr arfleifð Sveinbjarnar sem vert er að halda á lofti en yfirskrift fyrirlestrarins er fengin úr skólasetningarræðu Sveinbjarnar árið 1819 og er útlegging hans á alþekktu latnesku spakmæli: Non scholæ sed vitæ discimus - við lærum ekki fyrir skólann heldur lífið.

Guðmundur Andri lauk BA-prófi í íslensku og bókmenntafræði frá HÍ 1983. Þá stundaði hann nám til cand.mag.-prófs í íslenskum bókmenntum við HÍ 1983-1985. Guðmundur Andri hefur starfað sem blaðamaður, gagnrýnandi, ritstjóri og þáttagerðamaður. Hann er reglulegur pistlahöfundur hjá Fréttablaðinu og rithöfundur en fyrsta bók hans, Mín káta angist, kom út 1988. Meðal annarra skáldsagna hans er Sæmd sem fjallar um skáldið og rómantíkerinn Benedikt Gröndal. 

Fyrirlesturinn verður haldinn í Norræna húsinu og hefst klukkan 17.00. Allir velkomnir.

2016-09-14T17:00:00 - 2016-09-14T18:30:00