Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Árnastofnunar, heldur erindi um Ormsbók Snorra-Eddu laugardaginn 28. júní kl. 13. Ormsbók er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu og er hún til sýnis á handritasýningunni Heimur í orðum í Eddu.
Talið er að Snorri Sturluson hafi samið bókina sem kennslubók í skáldskaparfræðum. Hún er í samtalsformi og fjallar um norræna goðafræði, skáldamál og bragarhætti. Í Ormsbók er fleira efni en Edda, meðal annars Fyrsta málfræðiritgerðin svokallaða. Hún var samin á 12. öld í því augnamiði að gera latneska stafrófið sem nothæfast til að rita íslensku. Handritið er kennt við Ole Worm, prófessor í Kaupmannahöfn, sem eignaðist bókina á 17. öld.
Við vekjum athygli á því að handritasýningin í Eddu er opin alla daga nema mánudaga kl. 10–17.