Í tilefni af því að vefurinn Ísmús á 25 ára afmæli í ár heldur Árnastofnun í samstarfi við Félag þjóðfræðinga á Íslandi málþing í Eddu laugardaginn 3. október. Þar munu stíga á stokk fræðafólk, tónlistarfólk, kennarar og fleiri sem hafa komið að uppbyggingu vefsins eða nýtt hann í störfum sínum og sköpun.
Vefurinn Ísmús er samstarfsverkefni Árnastofnunar, Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Tónlistarsafns Íslands. Þar má finna upplýsingar um tónlistarsögu Íslands og upptökur úr þjóðfræðisafni Árnastofnunar. Auk þess er Ísmús heimili fyrir gagnagrunnana Sagnagrunn, Ævintýragrunn og óðfræðivefinn Braga.
Í lok málþingsins verður efnt til afmælisveislu með tónlistaratriði þar sem Arnljótur Sigurðsson mun skemmta okkur, vonandi með tónlist, dansi og tralli.
Dagskrá
14–14.50
Jón Hrólfur Sigurjónsson
Tónlistarsafn Íslands
Terry Gunnell
Sagnagrunnur
Hlé
15.05–16
Þóra Marteinsdóttir, tónmennta- og tónfræðikennari, kórstjóri og tónskáld, Kársnesskóli
Pétur Grétarsson, útvarpsmaður og slagverksleikari
Júlíana Þóra Magnúsdóttir þjóðfræðingur
Þorgerður E. Sigurðardóttir dagskrárgerðarmaður, Rás 1
Dagrún Jónsdóttir og Jón Jónsson þjóðfræðingar, Sauðfjársetur á Ströndum