Skip to main content

Viðburðir

Í góðri trú. Íslenskar handritaviðgerðir á 20. öld

Hildur Ploder Vigfúsdóttir flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Heimur í orðum í fyrirlestrasal Eddu.

Fyrirlesturinn fjallar um sögu og þróun handritaviðgerða á Íslandi á 20. öld. Sjónum verður beint að einstaklingum sem sinntu viðgerðum á handritum hér á landi en einnig verður farið yfir hvaða aðferðum og tækni var beitt, hvaða efni voru notuð og hvernig vinnubrögð breyttust á þessari viðburðaríku öld.

Efni fyrirlestrarins verður skýrt með dæmum úr handritum sem Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur lánað á sýninguna Heimur í orðum.

Hildur er pappírsforvörður á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og hefur rannsakað lím í viðgerðum íslenskra pappírshandrita.

Viðburður á Facebook

2026-09-29T12:00:00 - 2026-09-29T13:00:00