Í Norræna húsinu 30. október verður þess minnst að 100 ár eru liðin frá stofnun fyrstu orðanefndar Verkfræðingafélags Íslands. Fundurinn er haldinn af Verkfræðingafélagi Íslands í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Dagskrá hefst kl. 15.30.
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Verkfræðingafélags Íslands: Setning.
Þorsteinn Þorsteinsson, aðjunkt við Háskóla Íslands: Orðanefndir verkfræðinga, sögulegt yfirlit.
Ágústa Þorbergsdóttir, málfræðingur hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Frá nýyrðum til íðorða.
Nýr íðorðabanki formlega tekinn í notkun.
Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Ráðstefnuslit.
Léttar veitingar í boði Verkfræðingafélags Íslands.
Allir velkomnir.
2019-10-30T15:30:00 - 2019-10-30T17:00:00