Skip to main content

Viðburðir

Menningarnótt í Eddu

Í Eddu verður margt um að vera á Menningarnótt!

Kl. 10−17
Ókeypis aðgangur inn á handritasýninguna
Einstakt tækifæri til að sjá fimm forn handrit; Hómilíubókin, Uppsala−Edda, Bergsbók, Grettis sögu handrit og Codex Sparfvenfeldianus. Handritin eru fengin að láni frá Svíþjóð og verða til sýnis til 9. nóvember.

Kl. 13−16
Fjölskyldusmiðja
Tekið verður á móti gestum á öllum aldri í safnkennslustofunni Sögu á 1. hæð. Þar verður hægt að búa til sinn eigin upphafsstaf og skreyta í stíl íslenskra fornrita, klippa saman furðuverur, leika, lesa og lita.

Kl. 14−16
Leiðsagnir um handritasýninguna
Kannaðu leyndardóma fornbókanna í fylgd sérfræðinga.
Boðið verður upp á fjórar stuttar leiðsagnir um handritasýninguna Heimur í orðum:
- Á ensku kl. 14 og 14.30.
- Á íslensku kl. 15 og 15.30.

Kl. 16.15−16.45
Saxófóndúettinn Saxi & Sachsi flytur lifandi lyftutónlist kryddaða með þjóðlegum fróðleik ásamt því að greina frá samanburðarrannsóknum á stöðu saxófónsins að fornu og nýju með sérstakri áherslu á íslenskar fornbókmenntir.

Veigar og veitingar fást á kaffihúsinu Ými.

Viðburður á Facebook.

2026-08-22T10:00:00 - 2026-08-22T17:00:00