English below
Menota (Medieval Nordic Text Archive) eru samtök norrænna stofnana og safna sem vinna með miðaldatexta og handrit frá Norðurlöndunum á stafrænu formi.
Markmið Menota er að varðveita miðaldatexta og gera þá aðgengilega á stafrænu formi, auk þess að aðlaga og þróa þá kóðunarstaðla sem nauðsynlegir eru fyrir slíka útgáfu.
Í gagnagrunninum eru textar á norrænu tungumálunum og latínu.
Samtökin voru stofnuð árið 2001 og fagna því 25 ára afmæli í ár. Af því tilefni verður efnt til opinbers málþings 10. september í fyrirlestrasal Eddu.
Sjá dagskrá hér fyrir neðan.
***
Menota (Medieval Nordic Text Archive) is a network of leading Nordic archives, libraries and research departments working with medieval texts and manuscript facsimiles.
The aim of Menota is to preserve and publish medieval texts in digital form and to adapt and develop encoding standards necessary for this work.
The archive contains texts in the Nordic languages as well as in Latin.
Menota was founded in 2001 and on the occasion of this 25 year anniversary, a seminar will be held in the conference hall of Edda on September 10, 2026.
Dagskrá
13–13.15
Setning og ávarp
13.15–14.15
Litið yfir farinn veg: Odd Einar Haugen og Paul Meurer
14.15–14.45
Kaffihlé
14.45–15.45
Horft fram á veginn: Beeke Stegmann og Tarrin Wills
15.45–17
Móttaka