Norræn samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis (Samarbetsämnden för Nordenundervisning i utlandet - SNU), sem stofnunin á aðild að, heldur haustfund sinn í Helsinki 9. nóvember. Hlutverk nefndarinnar er að efla kennslu í Norðurlandamálum erlendis og styðja menningarkynningu og upplýsingamiðlun, sem norrænir sendikennarar og erlendir samstarfsmenn þeirra sinna við háskólastofnanir í norrænum málum og bókmenntum, bæði innan og utan Norðurlanda.
2021-11-09T09:00:00 - 2021-11-09T15:00:00