Norræn samstarfsnefnd um Norðurlandafræðslu erlendis, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á aðild að, heldur haustfund sinn í Reykjavík 25.–26. október.
Hlutverk nefndarinnar er að efla kennslu í Norðurlandamálum erlendis og styðja menningarkynningu og upplýsingamiðlun sem norrænir sendikennarar og erlendir samstarfsmenn þeirra sinna við háskólastofnanir í norrænum málum og bókmenntum, bæði innan og utan Norðurlanda.
2023-10-25T09:00:00 - 2023-10-26T12:00:00