Miðvikudaginn 10. apríl nk. verða liðin 100 ár frá fæðingu Jónasar Kristjánssonar, forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi. Í tilefni af því heldur Árnastofnun þann dag samkomu í Eddu, Arngrímsgötu 5. Dagskráin hefst kl. 15 með nokkrum stuttum erindum en að þeim loknum verður boðið upp á veitingar og söng við píanóundirleik.
Dagskrá
Guðrún Nordal: Inngangur
Vésteinn Ólason: Í þjónustu söguþjóðar
Guðni Kolbeinsson: Yfirmaður, lærifaðir og vinur
Margaret Cormack: Jónas og farfuglarnir
Guðrún Ása Grímsdóttir: Jónas, lærifaðir minn
Kristján Árnason: Á milli vita í Köldukinn
Aðalheiður Guðmundsdóttir: Hinn aldni fræðaþulur
Þórður Ingi Guðjónsson: Fornritagrúsk – af lífi og sál
Ármann Jakobsson: Alþýðufræðarinn Jónas
Þór Hjaltalín: Sögur frá Vínlandi