Föstudaginn 29. apríl mun Johnny F. Lindholm verja doktorsritgerð sína sem nefnist Sandheds Veje: Lutherske Strejflys over Ólafur Jónsson á Söndums Digtning.
Leiðbeinandi var Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Aðrir í doktorsnefnd voru Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor við Háskóla Íslands, Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, og dr. Anna Vind, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla.
Andmælendur eru Henrik Blicher, lektor við Kaupmannahafnarháskóla, og Sigríður Guðmarsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.
2022-04-29T13:00:00 - 2022-04-29T15:00:00