Boðnarþing verður haldið laugardaginn 11. maí nk. í sal Safnaðarheimilis Neskirkju við Hagatorg.
Boðnarþing er málþing um ljóðlist og óðfræði. Það er nú haldið í sjöunda sinn.
Dagskrá
(ágrip erinda má nálgast hér):
13.05 Þingsetning
13.15–13:45 Gauti Kristmannsson: Þýðingar án frumtexta.
13.45–14.15 Ingibjörg Þórisdóttir: Ljótt er fagurt og fagurt ljótt – Um íslenskar þýðingar á Macbeth eftir William Shakespeare.
14.15–14.45 Soffía Auður Birgisdóttir: Kraumandi eldvirkni: Bæling og sköpunarkraftur. Um ljóð Emily Dickinson, „My Life has stood – a Loaded Gun –“.
14.45–15.15 Hlé
15.15–15.45 Helgi Skúli Kjartansson: Brageyra — tilsögn eða tilfinning?
15.45–16.15 Úlfar Bragason: Sigurbjörg.
16.15–16.45 Þórhallur Eyþórsson: Kuhn, Haukur og aldur eddukvæða.
Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir. Þingið er haldið á vegum Boðnar, félags um óðfræði (bodn.is).