Vísindavaka Ranníss verður haldin í Laugardalshöll 28. september og lætur Árnastofnun sig ekki vanta.
Áhugasamir geta komið og borið saman mismunandi þýðingarvélar og prófað nýja þýðingarvél Árnastofnunar, sjálfvirka stafsetningarleiðréttingu með útskýringum og nýjar leiðir til að skoða skyldleika og uppruna íslenskra orða í nýrri vefútgáfu Íslenskrar orðsifjabókar.
2024-09-28T13:00:00 - 2024-09-29T18:00:00