Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir alþjóðlegum sumarskóla í íslenskri tungu og menningu 3.–28. júlí. Sumarskólinn verður haldinn bæði í Reykjavík og sem fjarnámskeið á netinu. Hann er ætlaður stúdentum í tungumála- og bókmenntanámi en aðrir sem áhuga hafa á íslensku nútímamáli og menningu eiga þess kost að sækja námskeiðið.
Mynd: Branislav Bédi
2023-07-03T09:00:00 - 2023-07-28T17:00:00