Skip to main content

Viðburðir

33. Rask ráðstefnan

26. janúar
2019
kl. 09–11

33. Rask-ráðstefnan um íslenskt mál og almenna málfræði verður haldin laugardaginn 26. janúar 2019

Íslenska málfræðifélagið, í samvinnu við Málvísindastofnun Háskóla Íslands, boðar til hinnar árlegu Rask-ráðstefnu laugardaginn 26. janúar 2019 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins.

Auglýst er eftir fyrirlestrum um íslenskt mál og almenna málfræði.

Hver fyrirlesari fær til ráðstöfunar 30 mínútur og er eðlilegt að ætla 5–10 mínútur af þeim til umræðna og fyrirspurna úr sal.

Þau sem vilja halda fyrirlestur eru beðin að senda vinnutitil og útdrátt um efnið (400–500 orð) til Eiríks Rögnvaldssonar (eirikur@hi.is) eigi síðar en 1. desember 2018 og skal tölvuskeytið merkt „Rask 2019“.

 

Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar.

2019-01-26T09:00:00 - 2019-01-26T11:00:00