Guðrún Nordal er einn ritstjóra heildarútgáfu dróttkvæða en út eru komin fimm bindi (1., 2., 3., 7. og 8. bindi) og önnur fimm langt komin auk skráa. Aðrir í ritstjórn eru Margaret Clunies Ross, Kari Ellen Gade, Edith Marold, Diana Whaley og Tarrin Wills. Aðstoðarmaður Guðrúnar er Soffía Guðný Guðmundsdóttir sem vinnur auk þess í verkefninu Skáldskaparmálið í sögum um Ísland. Á árinu var haldinn árlegur ritstjórnarfundur í Kaupmannahöfn.