Fimm forn handrit í láni frá Svíþjóð
Fimm íslensk handrit úr sænskum söfnum verða til sýnis á sýningunni Heimur í orðum á tímabilinu 12. maí til 8. nóvember.
Nánar
Fimm íslensk handrit úr sænskum söfnum verða til sýnis á sýningunni Heimur í orðum á tímabilinu 12. maí til 8. nóvember.
NánarÁ fæðingardegi Árna Magnússonar handritasafnara 13. nóvember gengst Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum árlega fyrir svokölluðum Árna Magnússonar fyrirlestri. Fyrirlesturinn er auglýstur á vef stofnunarinnar.
NánarLaugardaginn 13. júní hefst alþjóðlegt þjóðfræðaþing í Reykjavík sem kallast Natures in narrative. Rósa Þorsteinsdóttir var í undirbúningsnefnd fyrir hönd Árnastofnunar. Fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar verða í boði og eru lykilfyrirlestrar á sunnudag kl. 14.30 og þriðjudag kl. 14.30 opnir öllum.
NánarSteven Bird flytur fyrirlesturinn Towards a General Theory of Linguistic Diversity.
NánarStofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands annast skipulagningu á árlegu fjögurra vikna námskeiði í íslensku fyrir um 26 norræna stúdenta sem fram fer í Reykjavík 1.–25. júní. Námskeiðið er allt að 10 ECTS og samanstendur af rúmlega 70 kennslustundum.
NánarLaugardaginn 6. júní kl. 14 mun Hjalti Snær Ægisson rannsóknarlektor veita leiðsögn um íslensku handritin sem fengin voru að láni frá Svíþjóð og verða til sýnis í Eddu næstu sex mánuði.
NánarDagana 15.–25. júní verður Sumarskóli í handritafræðum haldinn í Eddu. Skólinn er haldinn til skiptis í Reykjavík og Kaupmannahöfn og er Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn samstarfsaðili Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum þau ár sem skólinn er haldinn hérlendis.
Nánar
Í gær voru kynntar tilnefningar til Íslensku safnaverðlaunanna árið 2026. Okkur til mikillar ánægju hlaut handritasýning Árnastofnunar í Eddu, Heimur í orðum, tilnefningu að þessu sinni.
Nánar