Skip to main content

Fréttir

Fimm forn handrit í láni frá Svíþjóð

Sigurður St. Jónsson

Fimm íslensk handrit úr sænskum söfnum verða til sýnis á sýningunni Heimur í orðum á tímabilinu 12. maí til 8. nóvember.

Tvö koma úr Háskólabókasafninu í Uppsölum: Uppsala-Edda, sem er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu, og Grettis sögu handrit frá 15. öld.

Hin þrjú koma úr Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi: Íslenska hómilíubókin, sem er eitt elsta handrit sem varðveist hefur frá Íslandi; Bergsbók, glæsilegt handrit sem geymir sögur konunganna Ólafs Tryggvasonar og Ólafs helga auk kveðskapar; Codex Sparfvenfeldianus, sem er merkilegt edduhandrit frá 17. öld.

Nánar um handritin á sýningunni Heimur í orðum.