Í gær voru kynntar tilnefningar til Íslensku safnaverðlaunanna árið 2026. Okkur til mikillar ánægja hlaut handritasýning Árnastofnunar í Eddu, Heimur í orðum, tilnefningu að þessu sinni.
Í rökstuðningi valnefndar segir meðal annars: „Markmið sýningarinnar eru skýr og mikilvæg og þeim náð með faglegum og markvissum hætti. Sýningin hvetur til víðsýni, sköpunar og lærdóms með því að varpa ljósi á fjölbreytileika tungumáls, menningar og sögu þjóðarinnar.“
Verðlaunaathöfnin verður haldin á Kjarvalsstöðum á Alþjóðlega safnadeginum 18. maí. Verðlaunin hafa verið veitt annað hvert ár síðan árið 2000.
