Skip to main content

Viðburðir

Halldóruþing

Halldóra Jónsdóttir orðabókaritstjóri mun láta af störfum í lok júnímánaðar.

Halldóra hefur unnið hjá Árnastofnun (áður Orðabók Háskólans) frá ársbyrjun 2006 og eru því liðin rúm 20 ár frá því að hún hóf störf sem verkefnisstjóri í norræna ISLEX-verkefninu. Í tilefni starfsloka hennar verður haldið málþing þar sem samstarfsmenn og vinir flytja stutt ávörp. Þeir sem taka til máls eru Þórdís Úlfarsdóttir, Kristín Bjarnadóttir, Stanislaw Bartoszek, Björn Halldórsson, Guðrún Magnúsdóttir og Guðrún Nordal sem jafnframt stýrir þinginu.

Í lok málþings verður boðið upp á léttar veitingar.

Allir velkomnir.

 

 

2026-06-11T14:00:00 - 2026-06-11T15:00:00