Skip to main content

Fréttir

Tíðfordríf Jóns lærða er komið út

Tíðfordríf

Í fyrra bindi (369 bls.) er inngangur útgefanda ásamt heimildaskrá, nafnaskrá og handritaskrá. Í seinna bindinu (119 bls.) er texti Tíðfordrífs, ásamt orðaskrá og nafnaskrá. Í inngangi Einars er að finna afar ítarlegar skýringar á efni ritsins og varðveislu, og gerð er grein fyrir leit að þeim heimildum sem Jón lærði hefur stuðst við. Texti Tíðfordrífs er varðveittur í mörgum handritum, bæði í heild og í hlutum. Vegna þess hve efnið er fjölbreytt hafa einstakir kaflar varðveist víða en Tíðfordríf er nú gefið út í heild í fyrsta sinn.