Skip to main content

Fréttir

Fræðimannaspjall um handrit allar helgar í apríl

Handrit á sýningu í Aðalstræti.

 

Um helgar í aprílmánuði gefst öllum kostur á að heyra fjóra fræðimenn af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum spjalla um handrit á sýningunni Landnámssögur – arfur í orðum. Sýningin segir sögur frá landnámi Íslands. Sögur sem hafa lifað með þjóðinni í árhundruð og varðveittar eru í handritum sem eiga rætur að rekja aftur til 12. aldar. Einstakt menningarlegt gildi íslensku handritanna er viðurkennt á alþjóðavísu og er handritasafn Árna Magnússonar á heimsminjaskrá UNESCO.

Sýninguna er að finna á sama stað og Landnámssýninguna í Aðalstræti í Reykjavík.

Fræðimennirnir mæta á sunnudögum kl. 14 og ausa af brunni visku sinnar í um 20 mínútur í senn. Gestum mun gefast kostur á að varpa fram spurningum um efni fyrirlestrarins. Þessi dagskrá fer fram á íslensku.

 

3. apríl. Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskumfræðum ríður á vaðið og fjallar um landnámssögur í Íslendingabók, Landnámu og Kjalnesingasögu

10. apríl. Gísli Sigurðsson talar um landnám Ingólfs, írsk áhrif í Kjalnesinga sögu og örnefni frá Ljóðhúsum í Suðureyjum.

17. apríl. Guðvarður Már Gunnlaugsson ræðir um hið merkilega fyrirbæri fornbréf, m.a. bréfið sem er á sýningunni

24. apríl. Guðrún Ása Grímsdóttir spjallar um Landnámabók.

 

Fólk skoðar handrit á sýningu.