Skip to main content

Fréttir

Árnastofnun óskar eftir þjónustufulltrúa

Móttakan í Eddu á opnu húsi vorið 2023.
SSJ

Árnastofnun auglýsir laus störf í þjónustuver stofnunarinnar í Eddu. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Upplýsingagjöf vegna sýningar.
  • Sala á aðgöngumiðum og söluvarningi í safnbúð.
  • Almenn þjónusta og móttaka gesta.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem snúa að þjónustu við gesti í Eddu.

Hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Góð almenn tölvuþekking er nauðsynleg.
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
  • Gott vald á íslensku og ensku er nauðsynleg og æskilegt að viðkomandi hafi gott vald á einu Norðurlandamáli.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Sýningin verður opin frá kl. 10–17 alla daga vikunnar nema mánudaga.

Ráðið verður í lausar stöður í þjónustuveri frá 1. nóvember 2024.

Að hluta til verður um vaktavinnu að ræða þar sem möguleiki er á að vinna eingöngu hluta úr viku eða jafnvel aðeins um helgar.

Starfshlutfall er 20-100%.

Umsóknarfrestur er til og með 11.09.2024.

 

Sótt er um starfið á island.is.

 

Nánari upplýsingar veitir

Guðný Rósa Þorvarðardóttir, sviðsstjóri - gudny.rosa.thorvardardottir@arnastofnun.is.