Skip to main content

Fréttir

Alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku

Mánudaginn 5. júlí 2010, hefst fjögurra vikna alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku í Háskóla Íslands. Námskeiðið er ætlað erlendum háskólastúdentum. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gengst fyrir námskeiðinu í samvinnu við hugvísindasvið Háskóla Íslands og annast skipulagningu þess. Alþingi hefur veitt styrk til að unnt sé að halda námskeiðið. Þetta er í tuttugasta og fjórða skiptið sem slíkt námskeið er haldið.

Þátttakendur eru þrjátíu og níu að þessu sinni og koma frá tólf löndum, flestir frá Bandaríkjunum og Bretlandi. Þeim er skipt í tvo hópa í íslenskunáminu eftir kunnáttu en allir hafa þegar lagt stund á íslensku heima fyrir, annaðhvort hjá íslenskukennurum eða með aðstoð vefnámskeiðsins Icelandic Online I. Auk þess að nema íslensku gefst stúdentunum tækifæri til að hlýða á fyrirlestra um náttúru Íslands, sögu Íslendinga, menningu á Íslandi og íslensk stjórnmál og heimsækja menningarstofnanir og skoða sig um á sögustöðum.

Þetta er fjórða námskeiðið fyrir erlenda námsmenn sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum skipuleggur á þessu sumri. Nýlokið er tveggja vikna íslenskunámskeiði fyrir vestur-íslensk ungmenni sem dveljast hér á landi í sumar á vegum Snorraverkefnisins svonefnda. Fimmtudaginn 1. júlí lýkur sex vikna námskeiði fyrir bandaríska stúdenta sem stofnunin stendur fyrir í samvinnu við Minnesotaháskóla. Sama dag lýkur fjögurra vikna norrænu sumarnámskeiði í íslensku sem að þessu sinni er haldið á vegum hugvísindasviðs Háskólans og stofnunarinnar. Alls taka tæplega hundrað nemar þátt í þessum fjórum námskeiðum.

Mikill áhugi er á að læra íslensku víða um lönd, ekki síst í Norður-Evrópu og Norður-Ameríku. Með ári hverju berast fleiri umsóknir um hvers konar íslenskunám fyrir útlendinga hér á landi. Nútímaíslenska er einnig kennd við marga erlenda háskóla. Minna má á að nú starfa sextán íslenskulektorar erlendis með styrk íslenskra stjórnvalda, fjórtán í níu Evrópulöndum, einn í Kanada og einn í Kína. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast umsjón með þessari kennslu.