Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og hugvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir alþjóðlegum sumarskóla í íslenskri tungu og menningu í júlímánuði ár hvert. Námskeiðið er einkum ætlað stúdentum í tungumála- og bókmenntanámi en aðrir sem áhuga hafa á íslensku nútímamáli og menningu eiga þess kost að sækja námskeiðið.
15. febrúar er síðasti dagur til að skila inn umsóknum en sumarskólinn hefst 1. júlí 2024.
Sjá nánari upplýsingar um sumarskólann á íslensku eða ensku.
2024-02-15T23:45:00