Mánudaginn 21. september verður dagskrá í fyrirlestrasal Eddu til að minnast þess að 25 ár eru liðin frá því hafist var handa við að vinna vefkennsluefnið Icelandic Online og fagna þeim áföngum sem unnist hafa síðan.
Dagskráin hefst kl. 15 og stendur yfir til kl. 16.30.
Til máls munu taka Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emeritus við Mála- og menningardeild HÍ, Branislav Bédi, umsjónarmaður sumarnámskeiða við Íslensku- og menningardeild HÍ og Árnastofnun, Daria Zhornik, BA-nemi í íslensku sem öðru máli við HÍ, Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar HÍ, Kolbrún Friðriksdóttir, dósent við Íslensku- og menningardeild HÍ, Owen J. Wilson, kennari í íslensku sem öðru máli við Mími, og Úlfar Bragason rannsóknarprófessor emeritus.
Við þetta tækifæri verður opnaður nýr vefkennsluvefur Icelandic Online fyrir börn.
Verið velkomin að fagna með okkur og þiggja léttar veitingar.
Styrktaraðilar eru Árnastofnun, Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.