Skip to main content

Viðburðir

Þjóðlistaþing – Hvað er á seyði?

Vökufélagið efnir til málþings í Eddu í samstarfi við Árnastofnun. Málþingið er fyrsti viðburður Vöku þjóðlistahátíðar og ber yfirskriftina Hvað er á seyði?

Hvað eru „þjóðlistir“ og hver er staða þeirra hér á landi og í alþjóðlegu samhengi? Hvert er hlutverk áhugafólks og sérfræðinga? Hvaða hlutverki gegna sögur og söngur í þjóðfræðisöfnum? Hvernig tengja lifandi hefðir fortíð og nútíð? Hvað getur gervigreindin gert fyrir okkur?

Þessar spurningar tökum við til umræðu á þjóðlistaþinginu. Við leiðum saman þjóðlagatónlistarfólk, handverksfólk, þjóðdansara, kvæðamenn og fræðafólk, auk fulltrúa annarra hópa sem tengjast þjóðlistum á Íslandi.

Dagskrá

Söngurinn og sögurnar
Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur hjá Árnastofnun og stjórnarmaður í Kvæðamannafélaginu Iðunni

Milli fortíðar og nútíðar. Lifandi hefðir, þjóðhættir og þjóðlistir
Sigurlaug Dagsdóttir, sérfræðingur á Þjóðháttasafni Þjóðminjasafns Íslands

Þjóðlistir í norrænu samhengi
Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur og þjóðdansari

Mannleg samskipti – það sem gervigreindin getur ekki gert fyrir okkur
Sigurður Halldórsson, prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands

Í lok málþingsins fara fram pallborðsumræður um stöðu þjóðlista. Auk fyrirlesara taka þar þátt Helga Maureen Gylfadóttir, deildarstjóri hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur, Bendt Pedersen, formaður Þjóðdansafélags Reykjavíkur, og Hilmar Hjartarson, harmonikkuleikari og fyrrverandi formaður Félags harmonikuunnenda í Reykjavík.

Umræðustjóri er Kristinn Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Nánar um hátíðarviku á Facebook.

 

 

2026-09-13T13:30:00 - 2026-09-13T15:30:00