Skip to main content

Viðburðir

Skálholt – bókmenntamiðstöð Brynjólfs biskups

Málverk af Brynjólfi Sveinssyni biskupi.
Mynd af Brynjólfi Sveinssyni (1605–1675).
Wikimedia Commons

Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Heimur í orðum.

Sautjánda öldin er eins konar stökkpallur milli miðalda og nútímans vegna þess mikla áhuga á fornum norrænum fræðum sem þá vaknaði. Á dögum Brynjólfs biskups Sveinssonar (1605–1675) var Skálholt menningarmiðstöð þar sem handritum var safnað, þau skrifuð upp, send úr landi, lánuð og gefin auk þess sem Brynjólfur átti sjálfur fjöldann allan af prentuðum bókum. Á sýningunni í Eddu eru allmörg handrit sem tengjast Brynjólfi.

Það sem gerir bækur áhugaverðar er fólkið sem átti þær, bjó þær til, las þær, gaf þær og lánaði öðrum. Bækur og handrit eru vitnisburður um lifandi manneskjur sem sóttu þangað fróðleik, skemmtun, gleði og huggun. Í erindinu verður fjallað um Brynjólf biskup og það lykilhlutverk sem hann gegndi í íslenskri menningarsögu.

Viðburður á Facebook

2026-02-07T13:00:00 - 2026-02-07T14:00:00