Skip to main content

Viðburðir

Rætt um Ísak

18. maí
2024
kl. 14–16

Edda
Arngrímsgata 5
107 Reykjavík
Ísland

Laugardaginn 18. maí mun Gyrðir Elíasson ræða við Hauk Ingvarsson og Kristínu Svövu Tómasdóttur um skáldið og manninn Ísak Harðarson en þá verður liðið rétt rúmlega ár síðan Ísak féll frá. Farið verður yfir feril hans, rætt um helstu áfanga og staldrað við ljóð, sögur og þýðingar eftir því sem tilefni gefst til. Lesið verður úr vel völdum verkum á milli.

Ísak Harðarson (1956–2023) var eitt af athyglisverðustu skáldum sinnar kynslóðar. Hann sendi frá sér sína fyrstu bók, ljóðabókina Þriggja orða nafn, árið 1982 og síðan hverja bókina af annarri upp frá því, jafnt ljóð sem sögur og ekki síst þýðingar síðustu árin. Gyrðir Elíasson þekkti vel til Ísaks og verka hans og telur hann óhikað til þjóðskálda.

Viðburðurinn verður á vegum Bókmennta- og listfræðastofnunar og Forlagsins og fer fram í fyrirlestrasal Eddu.

Allir velkomnir.

2024-05-18T14:00:00 - 2024-05-18T16:00:00