Að venju verður dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur 16. nóvember nk. Í tilefni dagsins munu nokkrir starfsmenn Árnastofnunar og kennarar í íslensku við Háskóla Íslands flytja örfyrirlestra um fjölbreytt efni laugardaginn 15. nóvember.
Fyrirlestrarnir hefjast kl. 13.30 í fyrirlestrasal Eddu og standa fram eftir degi.
Erindi flytja:
Branislav Bédi – „Ég fíla íslensku“ um kennslu íslensku í gegnum skynjunarfærni
Einar Freyr Sigurðsson – „Hvað ef?“ í málfræði
Steinþór Steingrímsson – Þýðingavélar – Hvenær virka þær vel og hvenær ekki?
Rúnar Helgi Vignisson – Sannsögur
Ellert Þór Jóhannsson – „Það eru helvítis þotur í mjer“ Orðabók Blöndals og daglegt mál í byrjun 20. aldar
Ari Páll Kristinsson – Brautryðjandi úr Breiðdal. Margháttað framlag dr. Stefáns Einarssonar (1897–1972) á vettvangi íslenskra fræða
Védís Ragnheiðardóttir – Um ritfærnikennslu
Hjalti Snær Ægisson – Bjarnar saga Hítdælakappa stuttulluð
Katelin Parsons – Glæpur og refsing Halls harða
Beeke Stegmann og Halla Oddný Magnúsdóttir – Nýjar rannsóknir við aldursgreiningu pappírs. Stutt myndband
Allir velkomnir.