Skip to main content

Viðburðir

Nordkurs-sumarnámskeið í íslensku fyrir norræna nemendur

7. júní–1. júlí
2021
kl. 09–17

Alþjóðasvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands annast skipulagningu á árlegu fjögurra vikna námskeiði í íslensku fyrir um 32 norræna stúdenta. Námskeiðið verður haldið bæði í Reykjavík og sem fjarnámskeið á netinu dagana 7. júní–1. júlí. Námskeiðið er allt að 10 ECTS og samanstendur af rúmlega 70 kennslustundum. Auk íslenskunámsins hlýða nemendur á fyrirlestra um íslenskt samfélag og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi.

Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Nordkurs.

2021-06-07T09:00:00 - 2021-07-01T17:00:00