Skip to main content

Viðburðir

Fjölskyldusmiðja. Skrifað á skinn með fjaðurstaf

Marta Guðrún Jóhannesdóttir safnkennari Árnastofnunar tekur á móti gestum í félagsheimilinu Breiðumýri sunnudaginn 1. nóvember kl. 14–16. Viðburðurinn er haldinn í tilefni 20 ára afmælis Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. 

Í fjölskyldusmiðjunni munu þátttakendur bregða sér í hlutverk skrifara frá miðöldum þar sem þeir fá tækifæri til að skrifa á skinn (bókfell) með fjaðurpenna og jurtableki.

Hægt verður að fræðast um gerð skinnhandrita og skoða eftirlíkingu af Flateyjarbók ásamt fleiru.

Viðburður á Facebook

2026-11-01T14:00:00 - 2026-11-01T16:00:00